Innlent

Annar Íslendingurinn var með 46 klukkustundur af barnaklámi

Andri Ólafsson skrifar
Íslendingarnir keyptu barnklámið af Ítala.
Íslendingarnir keyptu barnklámið af Ítala.

Íslendingarnir tveir sem handteknir voru í mars, vegna tengsla við alþjóðlegan barnaklámshring, eru báðir búsettir á höfuðborgarsvæðinu.

Annar er þrítugur og hinn rúmlega fertugur. Þeir tengjast ekki innbyrðis. Samkvæmt heimildum Vísis hefur hvorugur þeirra hlotið dóm áður. Samtals voru sjö tölvur haldlagðar í húleitum sem gerðar voru á heimilum þeirra. Í tölvu annars mannsins fann lögreglan rúmlega 24 þúsund ljósmyndir og um 800 hreyfimyndir sem, að mati lögreglu, sýndu kynferðislega misnotkun á börnum. Heildarsýningartími hreyfimyndanna var um 46 klukkustundir og þar á meðal var efni af umræddri heimasíðu.

Málið er á borði Ríkissaksóknara sem mun innan skamms ákæra mennina fyrir kaup og vörslu á umtalsverðu magni af barnaklámi sem á rætur sínar að rekja til Ítalíu og víðar. Þeir hafa þegar játað brot sín.

Mennirnir voru handteknir eftir ábendingar frá kollegum lögreglunnar í Evrópu. Um samræmdar aðgerðir var að ræða og var fjöldi manna handtekinn á sama tíma víðs vegar um Evrópu. Aðgerðin er nefnd "Operation Koala".

Maðurinn sem seldi Íslendingunum barnaklámið er 42 ára ítalskur ríkisborgari. Sá hefur framleitt meira en 150 hreyfimyndir sem sýna barnaníð. Gögn rannsóknarinnar sýna að hann átti meira en 2500 viðskiptavini sem greiddu fyrir aðgang að barnaklámsefni hans. Þar af voru tveir frá Íslandi.

Samkvæmt upplýsingum Vísis lögðu þeir sem keyptu barnaklámið fram pantanir um hvers konar níð þeir vildu sjá framið á börnunum sem neydd voru til verksins.

Myndbönd af þessu tagi fundust í fórum annars Íslendingsins sem handtekinn var í tengslum við málið. Hinn var eingöngu með ljósmyndir í tölvu sinni.

Börnin sem sjást á myndunum sem fundust í tölvum mannanna eru flest frá Austur-Evrópu. Töluverður hluti efnisins var til dæmis framleiddur í Úkraínu. Þess eru dæmi um að kaupendur efnisins hafi í einhverjum tilfellum fengið að vera viðstaddir framleiðslu barnaklámsins.

Eins og fyrr segir var framleiðandi og söluaðili barnaklámsins ítalskur ríkisborgari. Á einu myndbandinu sem haldlagt hefur verið sést karlmaður misnota tvær dætur sínar. Þær voru níu og ellefu ára gamlar þegar myndbandið var tekið upp.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×