Annar Íslendingurinn var með 46 klukkustundur af barnaklámi Andri Ólafsson skrifar 5. nóvember 2007 13:46 Íslendingarnir keyptu barnklámið af Ítala.
Íslendingarnir tveir sem handteknir voru í mars, vegna tengsla við alþjóðlegan barnaklámshring, eru báðir búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Annar er þrítugur og hinn rúmlega fertugur. Þeir tengjast ekki innbyrðis. Samkvæmt heimildum Vísis hefur hvorugur þeirra hlotið dóm áður. Samtals voru sjö tölvur haldlagðar í húleitum sem gerðar voru á heimilum þeirra. Í tölvu annars mannsins fann lögreglan rúmlega 24 þúsund ljósmyndir og um 800 hreyfimyndir sem, að mati lögreglu, sýndu kynferðislega misnotkun á börnum. Heildarsýningartími hreyfimyndanna var um 46 klukkustundir og þar á meðal var efni af umræddri heimasíðu. Málið er á borði Ríkissaksóknara sem mun innan skamms ákæra mennina fyrir kaup og vörslu á umtalsverðu magni af barnaklámi sem á rætur sínar að rekja til Ítalíu og víðar. Þeir hafa þegar játað brot sín. Mennirnir voru handteknir eftir ábendingar frá kollegum lögreglunnar í Evrópu. Um samræmdar aðgerðir var að ræða og var fjöldi manna handtekinn á sama tíma víðs vegar um Evrópu. Aðgerðin er nefnd "Operation Koala". Maðurinn sem seldi Íslendingunum barnaklámið er 42 ára ítalskur ríkisborgari. Sá hefur framleitt meira en 150 hreyfimyndir sem sýna barnaníð. Gögn rannsóknarinnar sýna að hann átti meira en 2500 viðskiptavini sem greiddu fyrir aðgang að barnaklámsefni hans. Þar af voru tveir frá Íslandi. Samkvæmt upplýsingum Vísis lögðu þeir sem keyptu barnaklámið fram pantanir um hvers konar níð þeir vildu sjá framið á börnunum sem neydd voru til verksins. Myndbönd af þessu tagi fundust í fórum annars Íslendingsins sem handtekinn var í tengslum við málið. Hinn var eingöngu með ljósmyndir í tölvu sinni. Börnin sem sjást á myndunum sem fundust í tölvum mannanna eru flest frá Austur-Evrópu. Töluverður hluti efnisins var til dæmis framleiddur í Úkraínu. Þess eru dæmi um að kaupendur efnisins hafi í einhverjum tilfellum fengið að vera viðstaddir framleiðslu barnaklámsins. Eins og fyrr segir var framleiðandi og söluaðili barnaklámsins ítalskur ríkisborgari. Á einu myndbandinu sem haldlagt hefur verið sést karlmaður misnota tvær dætur sínar. Þær voru níu og ellefu ára gamlar þegar myndbandið var tekið upp.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira