Telur Orkuveituna ekki skaðabótaskylda vegna REI-máls 2. nóvember 2007 11:24
Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, telur ekki að fyrirtækið hafi skapað sér skaðabótaskyldu vegna þeirrar ákvörðunar borgarráðs að hafna samruna Reykjavik Energy Invest, útrásararmi Orkuveitunnar, og Geysis Green Energy. Hún segir þó að þetta sé eitt af þeim málum sem stjórn Orkuveitunnar muni ræða þegar hún kemur saman til fundar í hádeginu í dag.Eins og greint var frá í fréttum í gær ákvað borgarráð að fara að tillögum stýrihóps um málefni Orkuveitunnar og REI og hafna samruna REI og Geysis Green Energy. Var stjórn Orkuveitunnar falið að ganga frá málinu.Bryndís segir að þessi beiðni borgarráðs verði aðalumræðuefni fundarins í dag sem og samrunamál REI í heild sinni. „Við munum fara yfir það í rólegheitum hvernig staðan er og hvernig unnið verður úr þessari ósk. Við eigum eftir að leggja það niður hvernig við útfærum þetta," segir Bryndís. Hún segir aðspurð að stjórnin muni jafnframt fara yfir hlut stjórnar Orkuveitunnar í málinu.Aðspurð segir Bryndís að hún telji ekki persónulega að það hafi skapast skaðabótaskylda af hálfu Orkuveitunnar vegna ákvörðunar borgarráðs eins og ýjað hefur verið að. Hún ætli þó ekki að fara að karpa um lögfræðileg álitamál en þetta sé eitt af því sem stjórn Orkuveitunnar skoði. „Við munum vinna rólega að þessu máli því ef það er eitthvað sem má læra af fyrri stigum þessa máls þá er það að vanda sig. Við munum fara kyrfilega yfir það," segir Bryndís.Bryndís bendir enn fremur á að meirihluti í stjórn Orkuveitunnar og borgarinnar styðji áfram útrás REI og það verði stjórnar Orkuveitunnar að kanna vel þau mál. Hins vegar viti hún ekki að hvaða niðurstaða verði ofan á þar.
Mest lesið Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent Fleiri fréttir Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Sjá meira