Hagar biðja Samkeppniseftirlitið að rannsaka áskanir um samráð 1. nóvember 2007 18:05
Hagar, sem meðal annars reka Bónus og Hagkaup, hafa sent Samkeppniseftirlitinu bréf þar sem fyrirtækið óskar eftir því að stofnunin hefji nú þegar rannsókn á tilhæfulausum ásökunum á hendur fyrirtækjum Haga þess efnis að fyrirtækin séu aðilar að ólögmætu samráði á matvörumarkaðnum hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.Vísað er til frétta Ríkisútvarpsins sem Hagar segja byggjast á sögusögnum ónafngreindra fyrrverandi starfsmanna félaginsi. Segja þeir að það hafi farið fram óvægin umræða um matvörumarkaðinn. „Sú umræða hefur farið fram í fjölmiðlum, á alþingi, í netmiðlum og víðar," segir í tilkynningu Haga.„Þrátt fyrir að niðurstaða rannsóknarblaðamennsku fréttamanna RÚV hafi sýnt að engar verðbreytingar hafi átt sér stað í verslunum Bónus á meðan verðkönnun var framkvæmd, hefur allur fréttaflutningur og önnur umfjöllun sett Bónus undir sama hatt og verslun, sem breytti verðum á meðan á verðkönnun stóð. Rétt er að ítreka að RÚV húsmóðirin fékk sama verð og RÚV fréttakonan í Bónus," segja HagarHagar vísa í yfirlýsingu sinni til umræðu á Alþingi í dag þar sem fram hafi komið að verðlagseftirliti ASÍ hefði verið úthýst og þar átt við verslanir Haga. Benda Hagar á að opinber gagnrýni félagsins hafi beinst að ónákvæmni í vinnubrögðum. Mörg dæmi séu um mannleg mistök, sem valdi því að niðurstöður verðkannana eru rangar.Hagar hafi bent á blekkingar í tengslum við heimsóknir ASÍ Þá hafi Hagar margítrekað bent ASÍ á skipulögð viðbrögð og blekkingar aðila á matvörumarkaði við heimsóknum verðlagseftirlits ASÍ og brot á þeim hluta samkomulags um verklagsreglur, sem gerðar voru á milli ASÍ og SVÞ. Þær snúi að því að engar verðbreytingar eigi sér stað í verslunum á meðan verðlagseftirlit ASÍ verðkannanir. Segja Hagar að ASÍ hafi á engan hátt brugðist við þessum athugasemdum.Þá telja Hagar ákveðnar fréttatilkynningar ASÍ eftir verðkannanir aðför að orðspori fyrirtækisins og m.a. farið fram á að dómkvaddir matsmenn fari yfir sannleiksgildi þeirra. „Dómkvaddir matsmenn munu hafa fullan aðgang að öllum gögnum Haga til þess að sannreyna hvort fréttatilkynningar ASÍ eigi við rök að styðjast eða ekki," segja Hagar„Með framangreint í huga hljóta Hagar einnig að velta fyrir sér trúverðugleika verðlagseftirlits ASÍ, þegar framkvæmdastjóri ASÍ er fyrrum stjórnarformaður Kaupás og þar með eins af okkar samkeppnisaðilum, Krónunnar," segir að endingu í tilkynningu Haga.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira