Innlent

Vill að borgin kaupi brunalóð

MYND/Vilhelm

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hyggst leggja fram tillögu á fundi borgráðs sem nú er hafinn um að borgin kaupi hornlóð Lækjargötu og Austurstrætis en húsin þar skemmdust sem kunnugt er mjög mikið í bruna í vor.

Jafnframt leggur borgarstjóri til að komið verði á fót starfshópi um uppbyggingu Kvosarinnar. Eins og kunnugt er voru viðræður á milli eigenda húsanna á horninu og borgarinnar fyrr í sumar um kaup borgarinnar á lóðinni en þær viðræður sigldu í strand.

Á fundi borgarráðs mun Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, jafnframt leggja leggja fyrir ráðið fyrstu tillögur stýrihóps um málefni Orkuveitunnar og REI en hún fer fyrir stýrihópnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×