Innlent

Ráðherrar hafa áhyggjur af bráðnun hafíss

MYND/Rósa

Umhverfisráðherrar Norðurlanda hafa áhyggjur af því hversu hratt hafís á Norðurslóðum bráðnar. Ráðherrarnir ræddu þessa þróun á fundi sínum í Ósló í dag sem haldinn var í tengslum við Norðurlandaráðsþing.

Fram kemur í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu að úrbreiðsla hafíss hafi aldrei mælst minni en í september síðastliðnum, en þá var hún 23 prósentum minni en árið 2005. Þá er bráðnun hafíssins á þessu ári er mun meiri en Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar taldi líklegt í skýrslu sem kom út sl. vor.

Bent er á að vísindamenn eigi erfitt með að skýra þessa öru þróun eingöngu út frá náttúrulegum sveiflum heldur sé hún merki um hlýnun lofthjúpsins af mannavöldum. Minnkandi útbreiðsla íssins geti einnig haft keðjuverkandi áhrif þar sem ísinn endurkastar geislum sólar út í geim, en opið haf drekkur í sig sólgeislun og varma.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði á fundinum að Íslendingar fylgdust grannt með þróun mála á Norðurslóðum. Bráðnun hafíssins hefði opnun siglingaleiða í för með sér og greiðari aðgang að auðlindum á svæðinu. Nú sigldu stór olíuflutningaskip með olíu um íslensku efnahagslögsöguna og búist væri við mikilli aukningu á þessarri umferð á komandi árum vegna olíuvinnslu á Norðurslóðum. Ísland óskaði eftir samvinnu við hin norrænu ríkinog Evrópuríki um að vakta þessar siglingar og efla viðbúnað gegn hugsanlegum slysum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×