Innlent

Við Dabbi erum góð blanda

Sverrir Stormsker.
Sverrir Stormsker. MYND/GVA

Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker hefur samið sálmalög sem hann ætlar að gefa út fyrir þarnæstu jól. Hann fékk Davíð Oddson, seðlabankastjóra í lið með sér sem situr nú við sálmaskriftir í frítíma sínum.

„Ég er búinn að semja lögin og láta Davíð fá demóin og hann er núna vonandi að semja baki brotnu,," segir Sverrir í samtali við Vísi. „Ég þyrfti einmitt að fara að heyra í honum með hvernig þetta gengur. Ætla að vona að hann sé ekki að láta bankastjórastörfin og svoleiðis tímasóun trufla sig við þessa mikilvægu vinnu."

Sverrir segir að hugmyndin hafi fyrst kviknað hjá sér fyrir um tveimur árum síðan og þá hafi hann minnst á þetta við Davíð og hann tekið mjög vel í þetta. „Ég hitti Davíð síðan á fundi fyrir svona mánuði síðan og þá ákváðum við að láta slag standa. Davíð er líklegast skemmtilegasti maður sem ég þekki, alveg drepfyndinn og eldklár, og hann er ekki síður gott sálmaskáld," segir Sverrir, sem hefði ekki getað óskað sér betri samstarfsmanns.

„Það var ekki inni í myndinni fyrir mig að semja textana sjálfur enda telst ég varla til trúræknustu manna í veröldinni, og það náttúrulega verður að vera einlægni í þessu og sannur tónn. Davíð er trúaður maður og ég hefði engan frekar viljað í djobbið, enda er hann laus við helgislepju og er frjór og frumlegur og hefur góð tök á ljóðforminu. Það mátti auðveldlega sjá af flottum sálmi sem hann birti í Lesbókinni fyrir nokkrum árum. Kallinn á ættir að rekja til Valdimars Briem og Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi meðan ég á hinsvegar ættir að rekja til trúleysingjanna Gríms Thomsens, Jóhanns Sigurjónssonar og Þorsteins Erlingssonar. Við Dabbi erum semsé góð blanda."

Verkið verður síðan útsett fyrir kór og hljómsveit og segist Sverrir vera að svipast um eftir kirkjukór. „Ætli ég byrji ekki á því að tala við kór Hallgrímskirkju. Það er verulega góður kór með góðum organista." Sverrir gerir ráð fyrir því að afraksturinn komi síðan út á plötu í október eða nóvember á næsta ári.

„Ég ætla bara að vona að kirkjunnar menn fari ekki á taugum," segir Sverrir sem hingað til hefur gert töluvert af því að skjóta nokkuð föstum skotum á kirkjuna. „En það er guðsneisti í þessum lögum þrátt fyrir það, enda sagði séra Gunnar Björnsson eitt sinn um mig í viðtali að trúleysinginn stæði nær guði en sá tómláti sem léti sig trúmál engu skipta, og ekki má gleyma að Páll postuli réðist harkalega gegn kristindómnum áður en hann umpólaðist og breyttist í dýrling. Svo það má nú ekki alveg afskrifa svepp einsog mig," segir Sverrir Stormsker að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×