Við Dabbi erum góð blanda 29. október 2007 17:00 Sverrir Stormsker. MYND/GVA
Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker hefur samið sálmalög sem hann ætlar að gefa út fyrir þarnæstu jól. Hann fékk Davíð Oddson, seðlabankastjóra í lið með sér sem situr nú við sálmaskriftir í frítíma sínum. „Ég er búinn að semja lögin og láta Davíð fá demóin og hann er núna vonandi að semja baki brotnu,," segir Sverrir í samtali við Vísi. „Ég þyrfti einmitt að fara að heyra í honum með hvernig þetta gengur. Ætla að vona að hann sé ekki að láta bankastjórastörfin og svoleiðis tímasóun trufla sig við þessa mikilvægu vinnu." Sverrir segir að hugmyndin hafi fyrst kviknað hjá sér fyrir um tveimur árum síðan og þá hafi hann minnst á þetta við Davíð og hann tekið mjög vel í þetta. „Ég hitti Davíð síðan á fundi fyrir svona mánuði síðan og þá ákváðum við að láta slag standa. Davíð er líklegast skemmtilegasti maður sem ég þekki, alveg drepfyndinn og eldklár, og hann er ekki síður gott sálmaskáld," segir Sverrir, sem hefði ekki getað óskað sér betri samstarfsmanns. „Það var ekki inni í myndinni fyrir mig að semja textana sjálfur enda telst ég varla til trúræknustu manna í veröldinni, og það náttúrulega verður að vera einlægni í þessu og sannur tónn. Davíð er trúaður maður og ég hefði engan frekar viljað í djobbið, enda er hann laus við helgislepju og er frjór og frumlegur og hefur góð tök á ljóðforminu. Það mátti auðveldlega sjá af flottum sálmi sem hann birti í Lesbókinni fyrir nokkrum árum. Kallinn á ættir að rekja til Valdimars Briem og Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi meðan ég á hinsvegar ættir að rekja til trúleysingjanna Gríms Thomsens, Jóhanns Sigurjónssonar og Þorsteins Erlingssonar. Við Dabbi erum semsé góð blanda." Verkið verður síðan útsett fyrir kór og hljómsveit og segist Sverrir vera að svipast um eftir kirkjukór. „Ætli ég byrji ekki á því að tala við kór Hallgrímskirkju. Það er verulega góður kór með góðum organista." Sverrir gerir ráð fyrir því að afraksturinn komi síðan út á plötu í október eða nóvember á næsta ári. „Ég ætla bara að vona að kirkjunnar menn fari ekki á taugum," segir Sverrir sem hingað til hefur gert töluvert af því að skjóta nokkuð föstum skotum á kirkjuna. „En það er guðsneisti í þessum lögum þrátt fyrir það, enda sagði séra Gunnar Björnsson eitt sinn um mig í viðtali að trúleysinginn stæði nær guði en sá tómláti sem léti sig trúmál engu skipta, og ekki má gleyma að Páll postuli réðist harkalega gegn kristindómnum áður en hann umpólaðist og breyttist í dýrling. Svo það má nú ekki alveg afskrifa svepp einsog mig," segir Sverrir Stormsker að lokum.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira