Staðfestir farbann yfir manni í Hraunaveitumáli 29. október 2007 16:46 MYND/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest farbannsúrskurð Héraðsdóms Austurlands yfir Letta sem tengist rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á kæru á hendur starfsmannaleigunni NCL og GT verktökum. Það var Vinnumálastofnun sem óskaði eftir því að lögregla rannsakaði hvort gögn frá GT verktökum um launakjör nokkurra Letta sem störfuðu hjá verktakanum við Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar væru rétt. Lettarnirnir leituðu til Afls starfsgreinafélags og kærði Afl málið til lögreglunnar. Vildi Afl að lögregla rannsakaði hvort Lettarnir hefðu á einhvern hátt verið neyddir með ólögmætum hótunum til að skrifa undir skjöl þess efnis að þeir hafi móttekið mun hærri launagreiðslur frá GT verktökum en þeir hefðu í raun og veru gert. Samkvæmt lögregsluskýrslu var sá sem úrskurðaður var í farbann annar þeirra sem sá um að afhenda starfsmönnunum laun sín og láta þá kvitta fyrir móttöku á umrædd skjöl. Segir í farbannsúrskurðinum að hann hafi því mögulega gerst sekur um lögbrot. Enn fremur kemur fram í farbannsúrskurðinum að rannsókn málsins sé nú vel á veg kominn og að lögregla hafi lokið yfirheyrslum yfir 13 vitnum í málinu. Yfirheyrslum yfir manninum sem úrskurðaður var í farbann sé ekki lokið og enn eigi eftir að bera undir hann gögn sem hafi grundvallarþýðingu í málinu. Þá eigi eftir að yfirheyra a.m.k. tvo aðila sem séu undir grun í málinu og líklegt sé að bera verði framburð þeirra undir kærða. Nauðsynlegt sé að tryggja nærveru kærða til að geta upplýst um brot þau sem honum hafi verið gefin að sök. Héraðsdómur Austurlands féllst í síðustu viku á farbann yfir manninum en hann leitaði til Hæstaréttar sem staðfesti úrskurðinn. Farbann yfir manninum gildir til 6. nóvember.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira