Innlent

Á 186 km hraða á Jökuldal

Frá Seyðisfirði.
Frá Seyðisfirði. MYND/SMK

Lögreglumenn hjá embætti lögreglunnar á Seyðisfirði höfðu hendur í hári ökumanns aðfaranótt laugardagsins eftir að hann var mældur á 186 kílómetra hraða á klukkustund á þjóðvegi 1 á Jökuldal.

Fram kemur í frétt lögreglunnar að þetta sé mesti hraði ökutækis sem mældur hafi verið hér hjá embættinu. Lögreglan á Seyðisfirði hafði mest mælt ökumann á 159 kílómetra hraða fyrir nokkrum árum.

Það þarf vart að taka það fram að ökumaðurinn sem tekinn var á laugardag var sviptur ökuréttindum og það í þrjá mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×