Innlent

Alvarleg líkamsárás á Solon

Mikill erill var hjá lögreglu í höfuðborginni í nótt og voru nokkrar líkamsárásir kærðar samkvæmt venju. Alvarlegasta árásin var á dyravörð á skemmtistaðnum Solon sem skaddaðist í andliti.

Fullt tungl var og hafði það hugsanlega einhver áhrif á mannlífið auk þess sem sumir vildu halda fyrsta vetrardaginn hátíðlegan.

Þó nokkuð mörg umferðaróhöpp urðu í höfuðborginn vegna hálku þar sem allsgáðir og ölvaðir ökumenn komu við sögu. Frá miðnætti til morguns voru 13 umferðaróhöpp í höfuðborginni með tilheyrandi eignatjóni en í flestum tilvikum urðu ekki meiðsl á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×