Innlent

Rafmagn fór af Efra-Breiðholti í nótt

Rafmagn fór af Efra-Breiðholtinu í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur var það bilun í háspennusteng milli Hraunbergs og Iðufells sem olli því að rafmagn fór af í Berg-, Hóla- og Fellahverfum.

Rafmagn var aftur komið á rúmri klukkustund eftir að það fór. Viðgerð á strengnum stendur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×