Myndband: Skipulögð unglingaslagsmál á Akureyri Andri Ólafsson skrifar 26. október 2007 14:04 "
Þetta er háalvarlegur hlutur," segir Gunnar Jóhannsson lögreglufulltrúi á Akureyri en það virðist færast í aukana að unglingar á Akureyri mæli sér mót til þess að fylgjast með skipulögðum slagsmálum. Slagsmálin eru svo kvikmynduð og birt á netinu. "Það er eins og krakkarnir líti á slagsmál sem einhvers konar afþreyingu," segir Gunnar sem orðið hefur var við fjölgun mála af þessu tagi. Í þessari viku hefur lögreglan tvisvar sinnum þurft að hafa afskipti af hóp ungmenna sem safnast hefur saman til þess að fylgjast með slagsmálum. Fyrra skiptið var á Glerártorgi seinnipart miðvikudags og það síðara í gærkvöld við Giljaskóla. Í bæði skiptin var verið að taka upp slagsmálin þegar lögregla kom á vettvang og eru upptökur frá slagsmálunum á Glerártorgi þegar komnar á netið. Gunnar Jóhannsson segir að þetta virðist vera einn kimi af menningu unglinga sem þurfi að líta alvarlegum augum. "Krakkarnir eru að hvetja hverjir aðra til dáða í slagsmálum eins og það sé hver önnur skemmtun. Það er eins og þau geri sér ekki grein fyrir því að það þarf stundum bara eitt högg til að örkumla þann sem verður fyrir því. Þetta er mikið áhyggjuefni." Gunnar biður foreldra að vera á varðbergi og tala við börnin sín um alvarleika ofbeldis. Myndbandið sem er sýnt hér á Vísi.is er tekið á Glerártorgi. Það hefur verið birt á Youtube. Drengirnir sem þarna takast á eru 15 ára gamlir. Þeir voru báðir færðir á lögreglustöð og þurftu foreldrar þeirra beggja að koma að sækja þá. Barnaverndaryfirvöldum á Akureyri hefur verið gert viðvart.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Sjá meira