Innlent

Myndband: Skipulögð unglingaslagsmál á Akureyri

Andri Ólafsson skrifar

"Þetta er háalvarlegur hlutur," segir Gunnar Jóhannsson lögreglufulltrúi á Akureyri en það virðist færast í aukana að unglingar á Akureyri mæli sér mót til þess að fylgjast með skipulögðum slagsmálum.

Slagsmálin eru svo kvikmynduð og birt á netinu.

"Það er eins og krakkarnir líti á slagsmál sem einhvers konar afþreyingu," segir Gunnar sem orðið hefur var við fjölgun mála af þessu tagi.

Í þessari viku hefur lögreglan tvisvar sinnum þurft að hafa afskipti af hóp ungmenna sem safnast hefur saman til þess að fylgjast með slagsmálum. Fyrra skiptið var á Glerártorgi seinnipart miðvikudags og það síðara í gærkvöld við Giljaskóla.

Í bæði skiptin var verið að taka upp slagsmálin þegar lögregla kom á vettvang og eru upptökur frá slagsmálunum á Glerártorgi þegar komnar á netið.

Gunnar Jóhannsson segir að þetta virðist vera einn kimi af menningu unglinga sem þurfi að líta alvarlegum augum.

"Krakkarnir eru að hvetja hverjir aðra til dáða í slagsmálum eins og það sé hver önnur skemmtun. Það er eins og þau geri sér ekki grein fyrir því að það þarf stundum bara eitt högg til að örkumla þann sem verður fyrir því. Þetta er mikið áhyggjuefni."

Gunnar biður foreldra að vera á varðbergi og tala við börnin sín um alvarleika ofbeldis.

Myndbandið sem er sýnt hér á Vísi.is er tekið á Glerártorgi. Það hefur verið birt á Youtube. Drengirnir sem þarna takast á eru 15 ára gamlir. Þeir voru báðir færðir á lögreglustöð og þurftu foreldrar þeirra beggja að koma að sækja þá. Barnaverndaryfirvöldum á Akureyri hefur verið gert viðvart.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×