Lífið

Greiddi sér á milli kynlífslota

Dömur, er þessi maður málið?
Dömur, er þessi maður málið? Nordic Photos / Getty Images

Enn eitt kynlífshneykslið er komið á yfirborðið er varðar sænska knattspyrnuþjálfarann Sven-Göran Eriksson.

Saima Ansari, einstæð móðir sem starfar sem hreinsitæknir, sagði í samtali við News of the World í dag frá ástarsambandi hennar við Eriksson sem er knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City.

Eriksson kom afar vel fram við hana en hún ákvað að greina frá sambandinu þegar hún komst að því að Eriksson ætti í sambandi við aðra konu.

„Ég hef engan áhuga á að vera í öðru sæti," sagði hún. „Engu að síður varð ég ástfangin af Sven. Jafnvel þótt að hann hafi verið svolítið sérstakur í svefnherberginu var hann besti elskuhugi sem ég hef nokkri sinnu átt. Hann veit hvernig á að koma fram við konur."

„Hann bauðst til að kaupa allt handa mér, jafnvel nýjan bíl. Ég skuldaði meira en tíu þúsund pund og hann borgaði þær skuldir niður, sísona. Ekta séntilmaður."

Ansari hitti hann eitt sinn er hann gisti á hóteli í Manchester-borg og gaf sig á tal við hann. Það endaði með því að hann fékk símanúmerið hennar og morguninn eftir bauð hann henni í morgunmat í lúxussvítu sinni.

Það varð upphaf sambandsins. Þau hittust í svítunni í hvert skipti sem hann var laus. Hún gisti þó aldrei yfir heila nótt.

Hún sagði frá því að Eriksson hafi verið einkar smámunasamur.

„Hann gekk alltaf mjög vel frá fötunum sínum og braut þau mjög vandlega saman. Hann fór í sífellu á baðherbergið til að skoða sjálfan sig í speglinum og athuga hvort allt væri ekki í lagi. Hann greiddi hárið sitt alltaf eftir kynlíf."

En hann var líka mjög gjafmildur og gaf henni dýr föt og skó. Hann greiddi niður skuldirnar hennar sem fyrr segir og bauðst meira að segja til að borga niður húsnæðislánin af íbúðinni hennar í Manchester.

Hún sagði líka frá því að hún gerði það að vana að nudda skallablettinn hans með barnaolíu á meðan að hann horfði á fótbolta í lúxussvítunni.

Sambandinu lauk þegar sagt var frá því að hann væri að hitta aðra konu. Eftir það hafa þau ekki hist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.