Innlent

Páll Gunnar víki sæti í rannsókn á mjólkurfélögum

MYND/Páll Bergmann

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á þá kröfu Mjólkursamsölunnar, Osta- og smjörsölunnar og Auðhumlu um að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, víki sæti við meðferð stofnunarinnar á máli fyrirtækjanna.

Eins og fram kom í fréttum í sumar gerði Samkeppniseftirlitið leit í húsakynnum félaganna vegna gruns um samkeppnisbrot. Málið er nú til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu og vildu forsvarsmenn félaganna að bæði Páll Gunnar og aðrir starfsmenn eftirlitsins vikju sæti vegna þess að skoðanir hans og starfsmanna eftirlitsins á meintu samkeppnisbroti hefðu þegar komið fram opinberlega. Því bæri þeim að víkja svo fyrirtækin nytu sannmælis og hlytu hlutlæga málsmeðferð.

Félögin þrjú vísuðu til nokkurra tilvika máli sínu til stuðnings, meðal annars orða Páls Gunnars á málþingi og í viðtölum við fjölmiðla og orðalags í beiðni um húsleit. Það var hins vegar ekkert þessara orða sem urðu til þess að Páli var gert að víkja sæti heldur orð sem hann lét falla á lokuðum fundi með lögmanni aðilanna þriggja í desember í fyrra. Þannig hafi hann sagt við lögmanninn í kjölfar umræðna utan dagskrár eftir að lögmaðurinn hafði afhent Páli bréf þar sem greint var frá sameiningum afurðarstöðva í mjólkuriðnaði: „ég ætla bara að segja eitt við þig, svei ykkur."

Taldi dómurinn framburð lögmannsins trúverðugan og að með þessu hefði forstjóri Samkeppniseftirlitsins verið að lýsa andúð sinni á aðilunum þremur. Orðin væru því fallin til þess að draga í efa óhlutdrægni forstjórans og var honum því gert að víkja sæti.

Hins vegar var ekkert talið fram komið í málinu sem þar sem draga mætti óhlutdrægni annarra starfsmanna Samkeppniseftirlitsins í efa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×