Páll Gunnar víki sæti í rannsókn á mjólkurfélögum 18. október 2007 16:37 MYND/Páll Bergmann
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á þá kröfu Mjólkursamsölunnar, Osta- og smjörsölunnar og Auðhumlu um að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, víki sæti við meðferð stofnunarinnar á máli fyrirtækjanna. Eins og fram kom í fréttum í sumar gerði Samkeppniseftirlitið leit í húsakynnum félaganna vegna gruns um samkeppnisbrot. Málið er nú til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu og vildu forsvarsmenn félaganna að bæði Páll Gunnar og aðrir starfsmenn eftirlitsins vikju sæti vegna þess að skoðanir hans og starfsmanna eftirlitsins á meintu samkeppnisbroti hefðu þegar komið fram opinberlega. Því bæri þeim að víkja svo fyrirtækin nytu sannmælis og hlytu hlutlæga málsmeðferð. Félögin þrjú vísuðu til nokkurra tilvika máli sínu til stuðnings, meðal annars orða Páls Gunnars á málþingi og í viðtölum við fjölmiðla og orðalags í beiðni um húsleit. Það var hins vegar ekkert þessara orða sem urðu til þess að Páli var gert að víkja sæti heldur orð sem hann lét falla á lokuðum fundi með lögmanni aðilanna þriggja í desember í fyrra. Þannig hafi hann sagt við lögmanninn í kjölfar umræðna utan dagskrár eftir að lögmaðurinn hafði afhent Páli bréf þar sem greint var frá sameiningum afurðarstöðva í mjólkuriðnaði: „ég ætla bara að segja eitt við þig, svei ykkur." Taldi dómurinn framburð lögmannsins trúverðugan og að með þessu hefði forstjóri Samkeppniseftirlitsins verið að lýsa andúð sinni á aðilunum þremur. Orðin væru því fallin til þess að draga í efa óhlutdrægni forstjórans og var honum því gert að víkja sæti. Hins vegar var ekkert talið fram komið í málinu sem þar sem draga mætti óhlutdrægni annarra starfsmanna Samkeppniseftirlitsins í efa.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira