Fá bara inni á frístundaheimili þrjá daga í viku 18. október 2007 14:32 Mannekla bitnar verr á börnum í Öskjuhlíðarskóla en öðrum. MYND/Róbert
Börnin á frístundaheimilinu í Vesturhlíð fara ekki varhluta af þeirri manneklu sem nú er á frístundaheimilum borgarinnar. Vesturhlíð er frístundaheimili fyrir krakkana í Öskjuhlíðarskóla og nú er svo komið að börnin fá flest bara inni á frístundaheimilinu þrjá daga vikunnar. „Það vantar helling af fólki hjá okkur ennþá," segir Heiður Baldursdóttir í Vesturhlíð. Hún segir mun erfiðara fyrir börnin í Vesturhlíð að takast á við óstöðugleikann sem fylgir manneklunni en fyrir krakka sem ekki búa við fötlun af neinu tagi. „Þessir krakkar fara ekkert á skólalóðina eftir skóla og hitta þar vini sína," segir Heiður en Vesturhlíð er í raun eini samkomustaður barnanna eftir að skólatíma lýkur. Að hafa starfssemina í lagi skiptir því að mínu mati meira máli fyrir þessi börn en önnur," segir Heiður, „enda þurfa mörg þeirra mjög skipulagða rútínu. Krakkarnir höndla þetta illa og oft eru þau mjög sár yfir því að fá ekki að koma hingað." Börnin í Vesturhlíð eru 76 talsins á þremur deildum og að mati Heiðar þyrfti að bæta við um 20 starfsmönnum á heimilið á hverjum degi til þess að koma rekstrinum í samt lag. Samtals á þessum þremur heimilum eru 76 börn á grunnskólaaldri. Heiður segir að á morgun föstudag, gefist almenningi og fjölmiðlum kostur á að kynna sér hið þróttmikla starf sem fram fer í Vesturhlíð þegar blásið verður til Vetrarhátíðar. „Það hefur verið mikil umræða um mannekluna á leikskólum og frístundaheimilum og mikið af fréttum á neikvæðu nótunum. Þess vegna datt okkur í hug að bjóða fólki að koma hingað á morgun á milli klukkan 15 og 17 til þess að sýna fram á að þetta er í raun og veru skemmtilegasta starf í heiminum," segir Heiður Baldursdóttir í Vesturhlíð. Öllum er frjálst að koma og kynna sér starfið en auk þess buðu starfsmennirnir stjórnamönnum í ÍTR, Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra sérstaklega til samkomunnar.
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Innlent Andrew látinn laus Erlent Fleiri fréttir Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök „Áratuga afturför“ og frost í greininni Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Sjá meira