Innlent

Sjálfstæðismenn fara ofan í kjölin á falli meirihlutans í borginni

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík hefur farið ofan í saumana á atburðarásinni sem leiddi til falls meirihluta Sjálfstæðismanna og Björns Inga Hrafnssonar í borgarstjórn. Sjálfstæðismenn neita að rannsókn fari fram á málinu innan Valhallar og að borgarfulltrúar flokksins hafi verið yfirheyrðir.

Svo virðist sem markmiðið með fundalotu Varðar að undanförnu sé að komast til botns í því hvað sprengdi samstarf Sjálfstæðisflokksins við Björn Inga Hrafnsson og Framsóknarflokkinn. Vörður fundaði enn um málið í hádeginu í dag.

Borgin hefur logað í kvittum og hálfsögðum sögum um fundi í bakherbergjum sem leiddu til falls fyrrum borgarstjóra og myndunar nýs meirihluta.

DV fullyrðir í dag að allsherjar uppgjör eigi sér nú stað í Valhöll þar sem standi yfir rannsóknarréttur með það að markmiðið að komast að því hver sveik hvern.

Marta Guðjónsdóttir, formaður Varðar, segir hins vegar að borgarfulltrúar hafi ekki verið yfirheyrðir enda sé Vörður ekki að rannsaka eitt né neitt.

Fram hefur komið að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks hafi ekki verið að öllu sáttir við oddvita sinn í málum REI.

Marta segir hins vegar að Vörður styðji borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins undir forystu oddvitans, Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.

Að sögn Mörtu hefur verið ákveðið að halda lokaðan fund á morgun þar sem trúnaðarmenn Sjálfstæðisflokksins koma saman ásamt forystumönnum flokksfélaganna í borginni og borgarfulltrúunum. Þar er áformað að kryfja málin frekar og að flokksmenn fái færi á að bera upp spurningar til borgarfulltrúanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×