Sjálfstæðismenn fara ofan í kjölin á falli meirihlutans í borginni 17. október 2007 18:48
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík hefur farið ofan í saumana á atburðarásinni sem leiddi til falls meirihluta Sjálfstæðismanna og Björns Inga Hrafnssonar í borgarstjórn. Sjálfstæðismenn neita að rannsókn fari fram á málinu innan Valhallar og að borgarfulltrúar flokksins hafi verið yfirheyrðir. Svo virðist sem markmiðið með fundalotu Varðar að undanförnu sé að komast til botns í því hvað sprengdi samstarf Sjálfstæðisflokksins við Björn Inga Hrafnsson og Framsóknarflokkinn. Vörður fundaði enn um málið í hádeginu í dag. Borgin hefur logað í kvittum og hálfsögðum sögum um fundi í bakherbergjum sem leiddu til falls fyrrum borgarstjóra og myndunar nýs meirihluta. DV fullyrðir í dag að allsherjar uppgjör eigi sér nú stað í Valhöll þar sem standi yfir rannsóknarréttur með það að markmiðið að komast að því hver sveik hvern. Marta Guðjónsdóttir, formaður Varðar, segir hins vegar að borgarfulltrúar hafi ekki verið yfirheyrðir enda sé Vörður ekki að rannsaka eitt né neitt. Fram hefur komið að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks hafi ekki verið að öllu sáttir við oddvita sinn í málum REI. Marta segir hins vegar að Vörður styðji borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins undir forystu oddvitans, Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Að sögn Mörtu hefur verið ákveðið að halda lokaðan fund á morgun þar sem trúnaðarmenn Sjálfstæðisflokksins koma saman ásamt forystumönnum flokksfélaganna í borginni og borgarfulltrúunum. Þar er áformað að kryfja málin frekar og að flokksmenn fái færi á að bera upp spurningar til borgarfulltrúanna.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Fleiri fréttir Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Sjá meira