Innlent

Árni tók við verðlaunum í Lávarðadeildinni

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, hlaut í dag Animal Action verðlaunin sem Alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin (IFAW) veita árlega. Árni veitti verðlaununum viðtöku í Lávarðadeild enska þingsins í London.

Robbie Marsland, formaður IFAW, sagði að starf Árna Finnssonar væri í hæsta gæðaflokki og nefndi hann sérstaklega framlag Árna til friðunnar hvala við Íslandsstrendur.

"Vonandi verður þessi viðurkenning til þess að fleiri Íslendingar helgi sig friðun dýra," sagði Marsland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×