Mokar „framsóknarflórinn" úr iðnaðarráðuneytinu 16. október 2007 14:20 „
Vatnalögin eru eitt af þeim stóru ágreiningsmálum sem komin eru upp á milli stjórnarflokkanna. Þeir vita ekkert hvernig þeir eiga að leysa úr málinu," sagði Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra við upphafi þingfundar í dag. Framsóknarmenn segja að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra svíki stefnumál sem Samfylkingin hafi kynnt fyrir síðustu kosningar. Þá hafi flokkurinn lofað að fella svokölluð vatnalög úr gildi. Vatnalögin voru eitt allra umdeildasta málið á síðasta þingi. Össur Skarphéðinsson sagði að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar væri að efna loforð sem Valgerður hefði gefið sem iðnaðarráðherra. Hún hafi lofað að skipa nefnd, þvert á alla flokka, sem hefði það hlutverk að fjalla um vatnalögin. Hann sagði að Framsóknarflokkurinn hefði vonda samvisku í málinu og Valgerður ætti að þakka sér fyrir að moka flórinn út úr framsóknarfjósinu. Vatnalögin, sem fela í sér að tilteknar vatnslendur verði skilgreindar í einkaeign, eiga að taka gildi 1. nóvember næstkomandi. Össur Skarphéiðinsson hefur lagt fram frumvarp þess efnis að gildistöku þeirra verði frestað um ár. Þverpólitísk þingnefnd verði svo falið það verkefni að gera tillögu sem allir flokkar geti sæst á.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira