Fær ekki að hitta fársjúka móður sína 15. október 2007 11:36 Þessi mynd af Guðmundi og Lai var tekin í upphafi þessa árs.
Víetnömsk kona, Lai Thai Nguyen, fær ekki að fara frá Íslandi til að vera hjá fársjúkri móður sinni í Víetnam. Móðir hennar á skammt eftir ólifað. Útlendingaeftirlitið getur ekki látið konuna hafa íslensk vegabréf vegna þess að Þjóðskrá tók einhliða ákvörðun um það að eiginmaður hennar ætti ekki lögheimili á Íslandi. Lay er því kyrrsett hér þangað til að Guðmundur fær viðurkennt íslenskt heimilisfang. Forsaga málsins er sú að Guðmundur Bjarnason, eiginmaður konunnar, hefur ferðast mikið til Asíu allt frá árinu 2004 og dvalið mikið þar. Tryggingastofnun ríkisins dró í efa að Guðmundur, sem er öryrki, væri búsettur á Íslandi. Var honum send fyrirspurn um málið í apríl 2006. Þeirri fyrirspurn svaraði hann með tölvupósti í júlí 2006 og sagðist halda heimili á Skúlagötu 72 ásamt maka sínum. Honum barst síðan aftur bréf frá Tryggingastofnun þremur dögum seinna. Þar var óskað upplýsinga um dagsetningar sem hann hafði dvalið í Kína. Hann sendi Tryggingastofnun allar þær upplýsingar sem spurt var um ásamt ljósriti úr vegabréfi sínu vegna áranna 2004 til 2006. Tryggingastofnun sendi í september 2006 öll þessi gögn til Þjóðskrár til að fá þeirra afstöðu í málinu. Í febrúar síðastliðinn varð Guðmundur síðan upplýstur um þá einhliða ákvörðun Þjóðskrár um að skrá lögheimili Guðmundar utan Íslands. Hún er afturvirk til janúar 2004. Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður Guðmundar, hefur krafið þjóðskrá um endurskoðun á þessari ákvörðun og sendi hún ítrekun um ósk þess efnis 25 júlí síðastliðinn. Þeirri beiðni hefur ekki verið svarað og hyggst Lára senda kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna málsmeðferðar Þjóðskrár. Samkvæmt íslenskum lögum er útlendingastofnun skylt að láta konuna hafa íslenskt vegabréf vegna hjúskaparstöðu hennar. Lögmaður Guðmundar, segir að ekki sé hægt að afgreiða vegabréf á meðan Þjóðskrá neitar að viðurkenna íslenskt heimilisfang Guðmundar. Lára segist draga í efa stjórnsýsluaðgerðir Þjóðskrár í málinu og að stofnunin brjóti gróflega á mannréttindum hans með ákvörðun sinni. „Hann fær ekki þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Hann fær heldur ekki þær örorkubætur sem hann á rétt á og er reyndar krafinn um þrjár milljónir í endurgreiðslu frá Tryggingastofnun. Svo fær konan hans ekki útgefið vegabréf. Allt hangir þetta á ákvörðun Þjóðskrár," segir Lára.
Tengdar fréttir Tryggingastofnun krefur landlausan öryrkja um 3 milljónir króna Guðmundur Bjarnason, sem er öryrki, þarf að endurgreiða Tryggingastofnun 3,3 milljónir króna vegna örorkulífeyris sem sagður er vera ofgreiddur. Krafan frá Tryggingastofnun var lögð fram eftir að Þjóðskrá tók einhliða ákvörðun um að breyta lögheimili Guðmundar Bjarnasonar án nokkurs samráðs við hann. 28. september 2007 15:53 Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira
Tryggingastofnun krefur landlausan öryrkja um 3 milljónir króna Guðmundur Bjarnason, sem er öryrki, þarf að endurgreiða Tryggingastofnun 3,3 milljónir króna vegna örorkulífeyris sem sagður er vera ofgreiddur. Krafan frá Tryggingastofnun var lögð fram eftir að Þjóðskrá tók einhliða ákvörðun um að breyta lögheimili Guðmundar Bjarnasonar án nokkurs samráðs við hann. 28. september 2007 15:53