Skilgetið pólitískt afkvæmi Alfreðs 12. október 2007 12:15
Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkurborgar er samansafn af fólki sem hefur það eitt markmið að halda völdum segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Hann segir Björn Inga skilgetið pólitískt afkvæmi Alfreð Þorsteinssonar. Það kemur líklega fáum á óvart að nýi meirihlutinn í borginni er ekki draumameirihlutinn að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi borgarfulltrúa. Guðlaugur segir að nýi meirihlutinn sé einungis samansafn af fólki sem hafi það eitt markmið að halda völdum. Björn Ingi og Alfreð féllust í faðma á fundi framsóknarmanna í höfuðstöðvum flokksins í dag eftir að Björn Ingi hafði útskýrt breytingar á meirihlutasamstarfi í borginni. Komið hefur fram að Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hafi setið fundi þar sem nýr meirihluti var myndaður í borginni. Alfreð var mjög ósáttur við Guðlaug þegar Guðlaugur ákvað að taka hann úr byggingarstjórn Landsspítala-Háskólasjúkrahús. Aðspurður um hvort að það hafi haft áhrif á gang mála segir Guðlaugur að hann haldi ekki að fyrrverandi meirihluti hafi verið byggður á því að halda Alfreð Þorsteinssyni á launum. Það sem sameini hins vegar nýjan meirihluta sé að koma Alfreð aftur við kjötkatlana. Guðlaugur segir að Björn Ingi Hrafnsson hafi komið sér á óvart. Hann sé skilgetið pólitískt afkvæmi Alfreð Þorsteinssonar með öllum sínum kostum og göllum. Ljóst sé að Björn Ingi hafi ekki staðið við það sem hann lofaði og hann verði að lifa með því.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira