Innlent

Samstarf við sjálfstæðismenn ekki á vetur setjandi

Fundur hófst nú á hádegi hjá framsóknarmönnum í höfuðstöðvum flokksins við Hverfisgötu. Þar ætluðu Björn Ingi Hrafnsson og Óskar Bergsson, fulltrúar flokksins í borgarstjórn, að fara yfir nýjustu sviptingar í borgarstjórn með flokksmönnum sínum.

Fundurinn var öllum opinn og meðal þeirra sem komu var Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, en hann er einn af þeim sem komu að myndun nýs meirihluta.

Alfreð sagði í samtali í hádegisfréttum Stöðvar 2 að aðkoma hans að málinu hefði verið stórlega ofmetin. „Það var öllum ljóst að staðan var þannig innan Sjálfstæðisflokksins að þetta samstarf var ekki á vetur setjandi. Við þær aðstæður fara menn að spjalla saman nánast úr öllum flokkum," segir Alfreð.

Alfreð segir ósanngjarnt hjá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins að saka Björn Inga Hrafnsson um óheilindi því það hafi blasað við öllum sem vildu og skildu eðli borgarmálanna að vandræðagangur væri innan Sjálfstæðisfloikksins. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðu farið á fund Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðisflokksins, án Vilhjálms borgarstjóra.

Aðspurður hvort hann eigi við að borgarfulltrúarnir hafi þá rekið rýting í bak borgarstjóra segir Alfreð að það megi orða það þannig. Vilhjálmur hafi verið orðinn algjörlega einangraður innan eigin flokks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×