Vilhjálmur fær meiri tíma til að spila golf 11. október 2007 17:36 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins héldu sameiginlegan blaðamannafund nú síðdegis. Að loknum stuttum ræðum Vilhjálms, fyrrverandi borgarstjóra, Gísla Marteins Baldurssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur svöruðu borgarfulltrúarnir spurningum fjölmiðla. Fyrsta spurningin snérist um framtíð Vilhjálms. „Það er allveg ljóst að ég er ekki borgarstjóri lengur," sagði Vilhjálmur. „Ég mun starfa áfram og veita minnihlutanum aðhald og ég hlakka til að takast á við þennan hóp." Vilhjálmur segist ekki hafa mikla trú á samstarfi nýs meirihluta og segir stjórnina verða slæma og tætta. Hann sagði undarlegt að fyrrverandi minnihlutaflokkum skuli duga handaband þegar samstarf við Björn Inga Hrafnsson er ákveðið. „Slíkt handsal dugði ekki í gærkvöldi," sagði Vilhjálmur og vísaði til þess að hann og Björn Ingi handsöluðu það í gærkvöldi að ná sáttum í málinu. Vilhjálmur sagði einnig óttast að starf Sjálfstæðismanna í borginn það sem af er kjörtímabilinu sé í hættu. „Nú hefst eyðslan á nýjan leik og það er áhyggjuefni. Vilhjálmur sagðist sjá fram á að hann myndi nú hafa meiri tíma til að spila golf og eyða tíma með fjölskyldu sinni og hann bætti því við að vissulega væri áfall að lenda í svona máli, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur springur. Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði að sjálfstæðismenn hefðu fylgt sannfæringu sinni í málinu. Hún sagði að ágreiningur hefði komið upp og að það mál hefði verið leyst. Björn Ingi hafi hins vegar verið ófáanlegur til að taka mið af sjónarmiðum samstarfsflokksins. Gísli Marteinn Baldursson tók undir með Hönnu og sagði að þau hefðu eygt sátt við Björn Inga í málinu eftir að þau höfðu sætt sjónarmið innan borgarstjórnarflokksins. „Það er fullkominn fyrirsláttur í málinu að hér hafi ríkt óeining," sagði Gísli Marteinn og Hanna Birna benti á að það væri sérkennilegt að nú væri verið að stofna meirihluta í borginni út frá hagsmunum Orkuveitunnar.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira