Vilhjálmur ætlar að sitja áfram í borgarstjórn 11. október 2007 17:26
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmssson, fráfarandi borgarstjóri, segir engin alvarleg ágreiningsmál hafa verið milli sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í borgarstjórn að undanskildum málefnum Orkuveitunnar og REI eins og fram hefði komið. Þetta sagði Vilhjálmur á blaðamannafundi á heimili sínu í Ljáskógum sem hann boðaði til ásamt flokkssystkinum sínum í borgarstjórn. Vilhjálmur sagði ákvörðun Björns Inga Hrafnssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, að slíta samstarfinu vera einhliða og fyrirvaralausa. Sagði hann enn fremur að hann og Björn hefðu í gærkvöld innsiglað að halda áfram samstarfi. Þeir hafi ætlað að funda í morgun klukkan 11 en Björn ekki mætt og heldur ekki á sameiginlegan fund meirihlutans í borgarstjórn í Höfða eftir hádegið. „Ég var farinn að óttast að eitthvað hefði komið fyrir hann," segir Vilhjálmur. Segir hann Björn Inga svo hafa hitt sig á heimili Vilhjálms og tilkynnt honum að minnihlutinn hefði boðið honum samstarf sem hann hefði þegið. Vilhjálmur sagði engan skugga hafa borið á samstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í borginni að undanskildu REI-málinu. Sjálfstæðisflokkurinn hefði þá eindregnu afstöðu að opinber fyrirtæki ættu ekki að vera í áhættusömum rekstr og fara þannig með fé borgarbúa. Þetta væri prinsipp sem ekki væri vikið frá. Sagði Vilhjálmur að það kæmi honum á óvart hversu Björn Ingi vildi halda öllu til streitu sem ákveðið hefði verið áður og en sjálfstæðismenn hefðu einungis hugsað um haf almennings. Þakkaði Vilhjálmur samstarfsfólki sínu samstarfið og sagðist ekki hafa mikla trú á nýjum meirihluta. Þetta væri samsuða fjögurra flokka og hún gæfis aldrei vel. Aðeins væri búið að semja um völd og bitlinga milli nýja meirihlutans.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira