Dagur: Félagshyggjustjórn um almannahagsmuni 11. október 2007 16:58
Dagur B. Eggertsson sagði á nýafstöðnum blaðamannafundi að nýr meirihluti sé félagshyggjustjórn sem sé meðal annars stofnuð um almannahagsmuni í orkumálu og um lýðræðisleg vinnubrögð. Hann segir að ekki sé búið að móta málefnaáherslur enda taki nýr meirihluti til starfa við mjög sérstakar aðstæður Hann segir að strax verði hafist handa við málefnavinnu. Hann segir að allir flokkar í nýja meirihlutanum hafi farið í gegnum kosningar fyrir rúmum ári síðan og verið með sviplíkar áherslur í flestum málum. Síðan hafi þeir rætt saman og kynnst áherslum hvers annars. Svandís Svavarsdóttir sagðist treysta sér til þess að vinna með Birni Inga þrátt fyrir aðkomu hans að REI málinu undanfarna daga. Hún sagði að full ástæða hefði verið til þess að spyrna við fótum í þeirri atburðarrás sem hefði verið í gangi undanfarið. Umræðan hefði þurft að vera miklu opnari. Björn Ingi Hrafnsson sagði að margt hefði komið sér mjög í opna skjöldu. Meðal annars það að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðu haldið krísufundi þar sem borgarstjóri var ekki hafður með. Hann sagði að sér þætti leitt hvernig komið hefði fyrir samstarfi hans við Vilhjálms því það hefði verið mjög gott. "Ég tek þetta mjög nærri mér," sagði Björn Ingi. Hann ítrekaði það að hann væri tilbúinn til að boða til annars eigendafundar í Orkuveitunni. Margét Sverrisdóttir sagði að það væri ánægjuefni að koma að þessu samstarfi. Það væri orðin slíkur glundroði í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins að það hafi verið skilda minnihlutans að mynda starfhæfa stjórn.
Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Innlent Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Erlent Fleiri fréttir Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Sjá meira