Rætt um REI í Höfða 11. október 2007 12:05 MYND/Heiða
Borgarstjórnarmeirihlutinn kemur saman til fundar í Höfða klukkan eitt og eftir því sem fréttastofa kemst næst á meðal annars að ræða málefni Reykjavik Energy Invest. Framtíð hlutar Orkuveitunnar í Reykjavík Energy Invest er enn í óvissu eftir að Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, lýsti því yfir í gær að óráð væri að selja hlut Orkuveitunnar strax ólíkt því sem sjálfstæðismenn vilja. Þó sagði Björn Ingi að það gæti verið skynsamlegt að selja lítinn hluta til að vega upp á móti því sem lagt hefur verið í þessa áhættufjárfestingu. Þetta er á skjön við það sem borgarfulltrúar Sjálfstæðismanna hafa sagt en þeir hafa lýst því yfir að þeir vilji selja hlutinn sem fyrst. Það er því óvíst hvað meirihlutinn ákveður að gera. Hvort hann ákveði að selja hlutinn strax eða bíða með það. Á fundi borgarstjórnar í gær kom fram að allir flokkar nema Sjálfstæðiflokkurinn eru á því að bíða með að selja hlutinn í REI. Það er því ljóst að í þessu máli gæti Framsóknarflokkurinn myndað meirihluta með Samfylkingunni, F-listanum og Vinstri grænum og ákveðið að selja ekki hlutina. Fundurinn í Höfða hafði verið boðaður fyrir allnokkru þar sem ræða átti fjárhagsáætlun borgarinnar en samkvæmt upplýsingum fréttastofu á einnig að ræða málefni REI.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira