Saka Sjálfstæðismenn í Kópavogi um spillingu 10. október 2007 19:00
Spilling réð því að Guðmundur Gunnarsson var ráðinn verkefnastjóri hjá Kópavogsbæ að mati Samfylkingarmanna í bænum, en Guðmundur var meðeigandi Gunnars Birgissonar bæjarstjóra í verktakafyritæki. Guðmundur var bæjarstjóri á Álftanesi til ársins 2006 eða allt þar til meirihluti Sjálfstæðisflokksins féll í bænum. Skömmu síðar var hann ráðinn verkefnastjóri hjá skipulagsdeild Kópavogs en staðan var ekki auglýst. Samfylkingin í Kópavogi segir Guðmund hafa verið ráðinn á launum sem eru algjörlega á skjön við það sem gengur og gerist hjá bænum. Sá starfsmaður sem áður hafi gengt starfinu hafi verið með um 167 þúsund krónur í laun en Guðmundur sé með tæpar 240 þúsund krónur í grunnlaun og fengi svo greitt fast fyrir 60 yfirvinnutíma á mánuði. Þá segir Samfylkingin að þegar kona sem gengdi nánast sama starfi og Guðmundur geri nú hafi reynt að malda í móinn vegna launanna var gerður við hana starfslokasamningur, eða með öðrum orðum, hún hafi verið rekin. Guðríður Arnardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi segir ráðningu og launakjör Guðmundar ekki vera neitt annað en grímulausa einkavinavæðingu Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, sagði í samtali við fréttastofu í dag ekki taka mark á þessum málflutningi. Hann segir Guðmund hafa verið hvalreka fyrir Kópavogsbæ og að augljóst sé að slíkur fengur myndi ekki koma til starfa hjá bænum á taxta launum. Málflutningur Samfylkingarinnar væri ekkert annað lágkúra í hámarki.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira