16 milljarða aukaútgjöld úr ríkissjóði 10. október 2007 16:40 MYND/HH
Óskað er eftir 16 milljarða króna aukaútgjöldum úr ríkissjóði í frumvarpi um fjáraukalög sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Þar af óskar fjármálaráðuneytið eftir um 6,7 milljörðum króna og félagsmálaráðuneytið um 1,7 milljarð króna. Af einstökum beiðnum ráðuneyta má meðal annars nefna: Utanríkisráðuneytið óskar eftir 45 milljón króna fjárheimild vegna Norðurvíkings 2007, sameiginlegrar heræfingar Íslands og Bandaríkjanna. Fram kemur í skýringu með óskinni að við brotthvarf varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafi forsætisráðherra og utanríkisráðherra gert samkomulag við bandarísk stjórnvöld þar sem gert er ráð fyrir árlegum sameiginlegum varnaræfingum á Íslandi.Um er ræða kostnað vegna farartækja, eldsneytis, fæðis og aðstöðu á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar. Þá er óskað eftir 280 milljón króna framlagi til rekstur Ratsjárstofnunar. Ennfremur óskar utanríkisráðuneytið eftir 87,9 milljónum króna vegna kaupa og endurbóta á bústað ræðismanns Íslands í Þórshöfn í Færeyjum. Á móti kaupunum kemur sala á bústað varamanns sendiherra í Stokkhólms en það embætti verður lagt niður.219 milljónir aukalega til HafróMYND/KPSSjávarútvegsráðuneytið óskar eftir 219 milljón króna hækkun á fjárveitingu til Hafrannsóknarstofnunar. Í greinargerð kemur fram að um sé að ræða meðal annars kostnað sem tilkemur vegna sameiginlegrar hvalatalningar árið 2007 og aukins eftirlits með ástandi fiskistofna við landið.Félagsmálaráðuneytið óskar eftir aukafjárheimild upp á 1,1 milljarð króna vegna skuldbindingar ríkissjóðs til að niðurgreiða vexti af lánum sem veitt verða á árinu 2007 til byggingar 400 leiguíbúða. Bygging íbúðanna er hluti af tímabundnu átaki sem miðar að því að fjölga leiguíbúðum um 1.600 á tímabilinu 2006 til ársloka 2009.Tæpar 80 milljónir til ríkislögreglustjóraMYND/JSDómsmálaráðuneytið óskar eftir 12,5 milljón króna viðbótarfjárveitingu til björgunarsveita til kaupa á Tetra-fjarskiptabúnaði. Þá óskar ráðuneytið ennfremur eftir 79,8 milljón króna hækkun á fjárheimild ríkislögreglustjóra meðal annars vegna sérsveitarmanna og til að standa undir kostnaði við starf tengslafulltrúa embættisins í Europol. Ennfremur er óskað eftir 106,4 milljón króna viðbótarframlagi til sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli vegna fjárhagsvanda embættisinsí árslok 2006.Fjármálaráðuneytið óskar eftir hækkun á áætlun um afskrifaðar skattakröfur um 4 milljarða króna. Fram kemur í greinargerð að meðal annars sé um að ræða fjárheimild á móti gjaldfærslu á beinum afskriftum á kröfum sem taldar eru vera tapaðar meðal annars vegna gjaldþrota.Sjá fjáraukalög í heild hér.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira