Kaupréttarsamningar ekki við hæfi 10. október 2007 12:36
Lykilstjórnendur í Orkuveitu Reykjavíkur gætu misst vinnuna fyrir að hafa ekki upplýst borgarfulltrúa með nægilega glöggum hætti um kaupréttarsamninga og fleira í aðdraganda sameiningar REI og Geysis Green Energy. Heilbrigðisráðherra, sem var hvatamaður að stofnun REI, segir kaupréttarsamningana ekki við hæfi. DV heldur því fram í dag að Sjálfstæðismenn vilji reka Guðmund Þóroddsson sem var forstjóri Orkuveitunnar þar til hann fékk tímabundið leyfi til að gerast forstjóri hins nýstækkaða Reykjavík Energy Invest. Af samtölum fréttastofu Stöðvar 2 við borgarfulltrúa í dag að dæma má telja líklegt að einhverjir hjá Orkuveitunni missi vinnunna. Sjálfstæðismenn í borginni eru harðir á því að lykilstjórnendur, en nöfn Guðmundar og Hjörleifs Kvaran komu upp í því samhengi, hefðu brugðist í að upplýsa borgarfulltrúa. Báðir þessir menn áttu að fá ríflegan kauprétt í REI og höfðu því gríðarlegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta þegar þeir kynntu málið fyrir borgarfulltrúum sjálfstæðismanna í síðustu viku. Af þessum fjárhagslegu hagsmunum vissu borgarfulltrúarnir hins vegar ekki. Aðrir segja að Guðmundur hafi ekkert gert af sér. Guðlaugur Þór Þórðarson, nú heilbrigðisráðherra, var stjórnarformaður Orkuveitunnar þegar REI var stofnað og hafði frumkvæði að því. Hann hefur hingað til neitað að tjá sig við Stöð tvö um málið. Stofnun REI voru ekki mistök, segir Guðlaugur og vildi ekki tjá sig um þá ákvörðun Sjálfstæðismanna að selja hlut Orkuveitunnar í REI. En hann kveðst ósáttur við kaupréttarsamningana.
Mest lesið Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira