Innlent

Jóhanna heimsækir geðfatlaða

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra heimsækir í dag fimm íbúa í nýjum íbúðum fyrir geðfatlaða við Lindargötu í Reykjavík.

Markmið heimsóknarinnar er að óska íbúum til hamingju með nýtt heimili en einnig að vekja athygli á alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum, lýsa samstöðu með þeim sem búa við geðröskun og styrkja baráttu þeirra fyrir mannréttindum.

Íbúðirnar við Lindargötu eru fyrstu nýju búsetuúrræðin sem tekin eru í notkun í Reykjavík samkvæmt átaki í þjónustu við geðfatlað fólk. Félagsmálaráðuneytið hafði áður tekið yfir þjónustu við 17 einstaklinga, sem Landsspítalinn veitti áður. Á landsbyggðinni hafa þegar verið teknar í notkun 14 íbúðir.

 

Framlag félagsmálaráðuneytisins til stofnkostnaðar vegna íbúðanna er tæplega 100 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×