Innlent

Fékk áttfalt blóðmagn úr Blóðbankanum

Blóðbankinn þarf að minnsta kosti 70 blóðgjafir á dag.
Blóðbankinn þarf að minnsta kosti 70 blóðgjafir á dag.
Karlmaður á fertugsaldri fékk 40 lítra af blóði eftir að hafa slasast alvarlega þegar bíll hans valt á Hellisheiði eystri á miðvikudag fyrir hálfum mánuði.  Maðurinn var fluttur til Reykjavíkur í sjúkraflugi, eftir því sem kemur á vefnum Vopnafjörður.is. Hann gekkst undir aðgerðir við komuna til Reykjavíkur.

Samkvæmt upplýsingum Vísis kom þriggja sentimetra rifa á ósæðina, hann hryggbrotnaði og rifbeinsbrotnaði og bæði lungu sködduðust. Við aðgerðina og eftir hana var manninum gefið alls fjörutíu lítra af blóði. Þetta er ríflega áttfalt það blóðmagn sem rennur um æðar meðalstórs karlmanns.

Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir í blóðbankanum, sagðist í samtali við Vísi ekki geta tjáð sig um mál einstakra sjúklinga. Hann segir þó að þegar alvarleg slys verði og gera þurfi miklar aðgerðir á sjúklingum þurfi stundum að gefa sjúklingum margfalt blóðmagn þeirra við aðgerð og eftir.

Sveinn vill þó vekja sérstaka athygli á að Landspítalinn þurfi blóð við daglega umönnun sjúklinga. Hann segir að vel hafi gengið að safna blóði meðal virkra blóðgjafa í sérstöku átaki í síðustu viku. Nú bjóði Blóðbankinn nýja blóðgjafa sérstaklega velkomna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×