Innlent

Lögreglan lýsir eftir stúlku

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Huldu Sólrúnu Aðalsteinsdóttur 15 ára sem fór frá heimili sínu í Reykjavík sl.miðvikudag. Hulda Sólrún er 175 cm á hæð, með dökkleitt axlarsítt hár með ljósum strípum og grannvaxinn.

Þegar síðast fréttist af Huldu Sólrúnu var hún klædd í svarbrúnann leðurjakka, ljósa strigaskó, dökkbláar gallabuxur og ljósa peysu. Þeir sem vita hvar hún er niðurkomin eða hafa orðið hennar varir eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×