Ungir jafnaðarmenn mótmæla flýtisölu á REI 9. október 2007 17:15 MYND/Pjetur
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir furða sig á hringlandahætti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í málefnum Reykjavík Energy Invest. Ungliðarnir telja það afleita hugmynd borgarfulltrúa flokksins að selja beri hlut Orkuveitu Reykjavíkur í félaginu með flýti. „Til þess eru engar málefnalegar ástæður og augljóst að með þessu er einungis verið að breiða yfir trúnaðarbrest innan meirihluta borgarstjórnar," segir í ályktuninni. „Tímabært er að borgarstjórnarmeirihlutinn taki hagsmuni Reykvíkinga fram yfir eigin aðgerðaþörf til að koma á pólitískum friði í eigin herbúðum." UJR segja að borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna hafi lagt áherslu á að borgin eigi ekki að koma að áhætturekstri með þátttöku sinni í Reykjavík Energy Invest. „Vill UJR minna á í því samhengi að REI var stofnað fyrir rúmu hálfu ári og var ljóst frá upphafi að því var ætlað að koma að útrásarstarfsemi. Ekki bar á hugmyndafræðilegum ágreiningi innan raða borgarfulltrúanna þá og kemur vandlæting þeirra á aðkomu borgarinnar að starfsemi fyrirtækisins nú undarlega fyrir sjónir." Þá leggja UJR áherslu á að yfirvöld fari sér að engu óðslega á komandi vikum og mánuðum og krefjast þess að hlutur Orkuveitunnar í Reykjavík Energy Invest verði ekki seldur með óðagoti. „Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík hafa jafnframt alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð sem viðhöfð voru við samruna Reykjavík Energy Invest við Geysir Green Energy. Ljóst er að lýðræðislegir stjórnarhættir voru hafðir að engu við ákvarðanatöku í málinu og að ekki eru öll kurl komin til grafar ennþá í því máli. Er sérstaklega vert að benda á mikilvægi þess að farið verði ítarlega yfir vafasamar ákvarðanir stjórnar REI um kaupréttarsamninga til handa ,,lykilstarfsmönnum", sem virðast illa þola nánari skoðun."
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira