Innlent

Þrír varamenn taka sæti á Alþingi í dag

MYND/GVA

Þrír varamenn taka sæti á Alþingi í dag þar á meðal Guðmundur Steingrímsson sonur Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra. Guðmundur segist ætla láta að sér kveða á þeim tíma sem hann mun sitja á þingi.

„Ég mun láta að mér kveða," sagði Guðmundur í samtali við Vísi. „Það gefst kannski ekki mikill tími til að leggja fram frumvörp en ég mun taka þátt í umræðunum og leggja fram fyrirspurnir."

Guðmundur tekur sæti sem varamaður Árna Páls Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í tvær vikur en Árni er farinn á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Aðrir varamenn sem taka sæti á Alþingi í dag eru þeir Þorvaldur Ingvarsson og Björn Valur Gíslason.

Guðmundur segist hafa lært heilmikið um stjórnmál af föður sínum. Hann segist ennfremur vera spenntur yfir því að setjast á þing. „Þetta er eins og fyrsti dagurinn í skólanum. Mér líður eins og ég þurfi að kaupa nýtt pennaveski."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×