Bilet.ro hlýtur verðlaun í Rúmeníu 9. október 2007 08:59 Bilet.ro hefur meðal annars haft umsjón með miðasölu á tónleika Rolling Stones í Rúmeníu. MYND/Getty
Bilet.ro, dótturfélag Miða.is, sigraði í flokki afþreyingarvefja við afhendingu rúmensku vefviðskiptaverðlaunanna í síðustu viku. Þetta var í annað sinn sem verðlaunin voru afhent og hlaut Bilet.ro verðlaun í flokknum „Besti afþreyingar og frístundavefurinn.“ Alls voru 24 vefir í úrslitum í þeim flokki. Vefur móðurfélagsins Miði.is er fyrirmynd Bilet.ro en Miði.is hreppti verðlaun í tveimur flokkum af fimm við afhendingu íslensku vefverðlaunanna 2007. „Þessi verðlaun eru sérstakur heiður og jafnvel ánægjulegri viðurkenning en þau íslensku," sagði Einar Sævarsson, framkvæmdastjóri Miða.is, í samtali við Vísi. „Við erum nýtt fyrirtæki á rúmenska markaðnum og það er alveg magnað hvað okkur hefur verið tekið vel. Auðvitað er samkeppni hér eins og annarstaðar, en kúnninn hefur augljóslega kosið og þessi verðlaun eru skemmtileg staðfesting á því." Í kjölfar inngöngu Rúmeníu í Evrópusambandið hafa sífellt fleiri stórstjörnur stigið á stokk þar í landi. Fyrirtækið hefur haft umsjón með miðasölu á stórtónleika þekktra listamanna svo sem Rolling Stones, Black eyed peas, Muse, Beyoncé og fleiri. Bilet.ro hóf formlega starfsemi í mars síðastliðnum og hefur á örfáum mánuðum náð ráðandi markaðshlutdeild í rúmenskri miðasölu. Miði.is var stofnað árið 2002 og starfa 10 manns hjá fyrirtækinu. Hjá rúmenska félaginu starfa ríflega 10 manns auk starfsmanna hjá samstarfsfyrirtækjum og á útsölustöðum. Miði.is og Bilet.ro annast miðasölu á leikrit, tónleika, kvikmyndir, íþróttaleiki, námskeið, ráðstefnur og fleira.
Mest lesið „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Lífið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Charli xcx gifti sig Lífið Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Lífið Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Lífið Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Lífið Fleiri fréttir Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Sjá meira