Sýknaður af utanvegaakstri við smölun 8. október 2007 16:00
Héraðsdómur Norðurlands eystra sektaði í dag karlmann um áttatíu þúsund krónur fyrir að aka á óskráðu vélhjóli við smölun. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um utanvegarakstur. Lögregla hafði afskipti af manninum í fyrra þar sem hann var í hlutverki gangnaforingja á Mývatnsöræfum. Þegar lögregla hugðist mæla ökuhraðann ók maðurinn út af veginum. Ók hann hjólinu um 70 metra utan vega og merktra slóða áður en lögregla hafði tal af honum. Maðurinn viðurkenndi að vera á óskráðu hjóli en neitaði hins vegar að hafa valdið landspjöllum. Bann er við slíku samkvæmt lögum en undantekningar veittar meðal annars vegna starfa manna við landbúnað. Segir í dómnum að meðan ekki verður öðruvísi kveðið á um líti dómari svo á að smalamennska falli undir störf við landbúnað. Hægt hefði verið að nota hesta en notkun þeirra sé alls ekki hættulaus, jafnvel vönum mönnum og ekki er borðleggjandi að engin náttúruspjöll leiði af traðki þeirra. „Þá er við margvíslegar aðstæður miklum mun hentugra að smala fé á vélknúnum fararskjótum, sem fram yfir hina lifandi hafa bæði hraða og úthald, auk þess sem kenjar og hrekkir hinna vélknúnu eru miklum mun útreiknanlegri og viðráðanlegri en hinna lifandi," segir í dómnum. „Það er mat dómara að miklu skynsamlegra væri, með tilliti til hættu á landspjöllum, að brúka fjórhjól við smalamennsku en tæki á borð við það sem ákærði notaði, með skírskotun til þeirrar staðreyndar að þungi tækis og smala dreifist þá á fjögur hjól en ekki tvö. Hins vegar hefur ekki verið hnekkt þeirri staðhæfingu ákærða að hann hafi engum spjöllum valdið á landi með notkun þess ökutækis sem hér um ræðir, en í því felst að hann hefur virt skilyrði ákvæðisins um að hafa sérstaka aðgát við aksturinn,“ segir enn fremur í dómnum. Var maðurinn því sýknaður af ákæru um utanvegaakstur.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira