Innlent

Kreppuástand meðal sjófuglategunda í Norðurhöfum

Kreppuástand ríkir meðal nokkurra sjófuglategunda á víðáttumiklu svæði í Norðurhöfum, þar meðal hjá fýl, ritu, kríu, langvíu og lunda. Þetta kom fram á fundi sérfræðingahóps sem haldinn var í Færeyjum í septemberlok.

Í tilkynningu frá Náttúrufræðistofnun Íslands segir að víðtækar umhverfisbreytingar sem rekja megi til loftlagsbreytinga hafi raskað fæðuvef sjófugla í Norðurhöfum og því hafi sjófuglabyggðum fækkað og margir stofnar átt erfitt með að koma ungum á legg. Eiga fyrrnefndar fuglategundir í vandræðum á svæði all frá Íslandi til Færeyja, Skotlands og Noregs.

Sérfræðingarnir telja breytingarnar af völdum ýmissa samverkandi þátta, bæði náttúrulegra sveiflna í loftslagi og fyrir áhrif frá manninum. Meðal annars er bent á að rauðáta, sem er smávaxið krabbadýr, hafi færst norður á bóginn og sé nær horfin úr syðri hlutum NA-Atlantshafs þar sem sjófuglar eru í vanda. Rauðátan sé meginæti sandsílis sem aftur sé mjög mikilvæg fisktegund fyrir ýmsa sjófugla.

Sérfræðingarnir segja mikla óvissu ríkja um það hvaða áhrif hlýnandi loftslag hafi á sjófugla. Benda þeir á að stjórna þurfi betur þáttum sem hafa áhrif á sjófugla og unnt er að stjórna, svo sem fiskveiðum, olíumengun, nytjum á sjófuglum og mengun af völdum eiturefna. Þeir leggja áherslu á samvinnu margra greina þjóðfélagsins við það verkefni. Allir samfélagshópar sem málið snertir skuli hafa sama markmið sem er að draga úr heildaráhrifum þátta sem maðurinn ræður við og geta leitt tilskerðingar á mikilvægum, hefðbundnum varpstöðvum sjófugla. Nánari tillögum um mótvægisaðgerðir verður lýst í skýrslu vinnufundarins sem kemur út síðar í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×