Byrgisstúlka vinnur sjálfboðavinnu í sunnudagaskóla 8. október 2007 12:51 Ólöf er búin að vera edrú síðan í sumar.
Ólöf Ósk Erlendsdóttir, sem vakti athygli í fyrravetur, þegar hún sakaði Guðmund Jónsson í Byrginu um níðingsverk, starfar nú í sjálfboðavinnu í sunnudagaskóla í Grafarvogskirkju. Þetta kom fram í málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ólöf Ósk sætir ákæru vegna aðildar að líkamsárás. Samkvæmt ákæru er Ólöfu gefið að sök að hafa ásamt fjórum öðrum karlmönnum ruðst inn í íbúð á heimili mannsins í janúar. Hún er sögð hafa blekkt hann til að hleypa sér inn og hleypt síðan vitorðsmönnum sínum inn. Í ákærunni kemur fram að tveir karlmannanna hafi þvingað fórnarlambið til að setjast á stól og Ólöf hafi síðan bundið hann fastan, keflað hann með munnkúlu með áfastri ól og sett leðurgrímu yfir höfuð hans. Tveir mannanna hafi síðan kýlt manninn í andlitið, sparkað í hann og annar þeirra hellt eldfimum vökva yfir hann. Manninum hafi síðan verið hótað frekari barsmíðum, að tennurnar í honum yrðu brotnar og borað yrði í hnéskeljar hans. Honum hafi einnig verið hótað að dælt yrði í hann úr sprautu þannig að hann hlyti bana af. Þá hafi honum verið ógnað með hnífi og hann barinn með járnstöng. Ólöf játaði aðild sína að brotinu fyrir dómi. Hún sagðist hafa neytt fíkniefna með hléum frá því að hún var í grunnskóla. Hún hafi verið í mikilli neyslu á þeim tíma sem ráðist var á manninn en sé nú búin að vera edrú í um það bil tvo og hálfan mánuð. Hún sagðist vinna sjálfboðaliðsstarf í kirkjunni til að öðlast aftur traust almennings. Þeir sem eru ákærðir fyrir aðild að líkamsrárásinni auk Ólafar eru Arnar Óli Bjarnason, Mikael Arnar Calhoun, Ragnar Ingi Arnarsson og Róbert Wayne Love.
Mest lesið Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Innlent Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Erlent Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Innlent Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Innlent Fleiri fréttir „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Skellur fyrir Trump „Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Leita vitna að atviki í Bolungarvíkurgöngum Rannsaka tilefnislausa líkamsárás í miðbænum Loka sundlaugum vegna loðnuvertíðar Ballið byrjað í Bláfjöllum Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Grafalvarlegt að berklasmit hafi greinst Kvörtunum rigndi yfir umboðsmann í fyrra Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Regína lætur staðar numið í Mosó Kerfið mikið breytt frá því að Barnaverndarstofa var lögð niður „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Forstjóri Intuens svarar fyrir sig og Bláfjöll lifna við Tveir starfsmenn á heilsugæslu með berklasmit Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Opið í Bláfjöllum í dag Ásmundur Einar yfir strákanefnd dómsmálaráðherra Bráðamóttakan megi ekki vera „forarpyttur sýkinga og hættu“ Meirihluti vill frekar tvö stutt vetrarfrí en eitt lengra Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Sjá meira