Innlent

Dómsmálaráðherra: Dapurlegt tímanna tákn að Alfreð skuli verja sjálfstæðismenn í OR

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra heldur áfram að fjalla um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest á bloggi sínu.

Í gærkvöld skrifaði hann að í ljósi þess sem á undan væri gengið og gagnrýni sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur á Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformann OR, hefði verið dapurlegt að horfa á hann í Kastljósi og verja stjórnahætti núverandi meirihluta.

Björn og félagar hans í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík deildu hart á vinnubrögð Alfreðs í Orkuveitunni á sínum tíma, ekki síst fyrir þátttöku hennar í áhættufjárfestingum.

Björn sagði fyrr í vikunni að það væri miður ef það væri ennþá svo að minnihlutanum reyndist erfitt að fá gögn er vörðuðu málefni OR og dótturfyrirtækja hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×