Innlent

Tvennt flutt á slysadeild vegna gruns um reykeitrun

Tilkynnt var um að eldur væri laus í gömlu húsi við Búðarstíg á Eyrarbakka laust eftir klukkan 16:00 í gær. Sjúkraflutningamenn voru fyrstir á staðinn og voru húsráðandi og gestir komnir út.

Á heimsíðu félags sjúkraflutningamanna í Árnessýslu er sagt svo frá atvikum:

Fljótlega kom þó í ljós að ekki var laus eldur innandyra og eftir athugun kom í ljós að gömul olíukynding hefði hafið upp rausn sína að nýju eftir margra ára ef ekki áratuga dvala. Við það myndaðist mikill reykur í húsinu, þó helst í kjallara. Engum varð verulega meint af en þó var tvennt flutt á slysadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands vegna gruns um reykeitrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×