Innlent

Nítján teknir fyrir brot á lögreglusamþykkt

Erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Talsverð ölvun var í miðbæ Reykjavíkur og nokkuð um pústra að sögn lögreglu.

Tilkynnt var um fimm minniháttar líkamsárásir og nítján kærðir fyrir brot á lögreglusamþykkt. Í flestum tilvikum höfðu menn verið að brjóta flöskur eða kasta af sér vatni á almannafæri. Þá voru sex ökumenn teknir fyrir ölvunarakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×