Innlent

Tvær bílveltur á Ísafirði

Tvær bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði í nótt. Klukkan hálfþrjú fór fólksbíll útaf veginum í Hnífdal með þrjá farþega, allt ungmenni, innanborðs. Öll þrjú voru flutt á sjúkrahús með minniháttar meiðsli.

Klukkutíma síðar fór fólksbíll útaf í Holtahverfi og valt út í á við veginn. Ungur karlmaður var við stýrið og var hann einnig fluttur á sjúkrahús. Meiðsli hans voru ekki talin alvarleg.

Lögreglan á Ísafirði segir að mikil úrkoma í gærdag hafi breyst í snjókomu og krapa eftir því sem leið á gærkvöldið þegar tók að kólna. Krapi var á vegum sem gerði færð erfiða og virðist það hafa komið mörgum ökumönnum í opna skjöldu. Starfsmenn Vegagerðarinnar fór út í morgun til að ryðja vegi á Ísafirði og í nágrenni.

Búið er að ryða Óshlíðina en nokkuð var um grjóthrun þar í gær. Eftir að frysti í nótt er hins vegar ekki talið að hætta sé á meira hruni úr hlíðinni að sinni.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×