Innlent

Stuðlabergið tískufyrirbrigði?

Björn Þorláksson skrifar
Verið er að klæða menningarhúsið á Akureyri með stuðlabergi
Verið er að klæða menningarhúsið á Akureyri með stuðlabergi MYND/Stöð 2

Þrjú þúsund tonna stuðlabergsklæðning sem þekja mun menningarhúsið á Akureyri hefur vakið mikla athygli. Svo gæti farið að stuðlabergið yrði að tískufyrirbrigði.

Bútarnir sem notaðir notaðir eru til að klæða húsið eru úr efni sem ættað er úr námu í Hreppunum. Einu námu landsins þar sem hægt er að nálgast stuðlaberg.

Vinna við klæðninguna hófst fyrir rúmum hálfum mánuði. Þar sem stuðlabergsklæðning sem þessi hefur aldrei áður verið sett á heilt hús hér innanlands þá höfðu bæjaryfirvöld til vara áætlun um að klæða húsið kopar. En nú þegar þetta gengur svo vel, hafa fleiri velt fyrir sér samskonar klæðningu.

Það eru tékkneskir steinsmiðir sem sjá um að setja upp klæðninguna en hún kostar um 65 milljónir króna. Heildarkostnaður við menningarhúsið mun aftur hlaupa á 3 milljörðum. Búist er við að húsið verði vígt árið 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×