Innlent

Hátt hlutfall kvikasilfurs í stórurriða í Þingvallavatni

Umhverfisstofnun tók nýlega þátt í norrænu verkefni þar sem mælt var magn kvikasilfurs í urriða til að kanna áhrif umhverfis á upptöku þess í fiski. Sýni voru tekin af urriða í Elliðavatni, Mývatni, Stóra-Fossvatni og Þingvallavatni. Magn kvikasilfurs var yfirleitt lágt ef undan er skilinn stórurriði í Þingvallavatni.

Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun var magn kvikasilfurs sem mældist í fiski úr þessum vötnum var á bilinu 0,01 - 0,05 mg/kg sem er mjög lágt gildi. Undantekning var þó stórurriði úr Þingvallavatni en í honum mældist kvikasilfur á bilinu 0,2 - 0,9 mg/kg. Um er að ræða 60-90 cm langan fisk og um 4 til 7 kg að þyngd.

Hér á landi gilda reglur um hámarksmagn aðskotaefna í matvælum. Hafi matvæli hærri styrk en þar segir má ekki dreifa eða selja viðkomandi vöru. Samkvæmt reglugerðum sem fjalla um aðskotaefni í matvælum, er um tvö hámarksgildi fyrir kvikasilfur að ræða. Annars vegar lægra hámarksgildi fyrir fisk sem oft er neytt, og hins vegar hærra hámarksgildi fyrir fisktegundir sem sjaldnar er neytt, eins og hákarl og stórlúðu (stórflyðru). Hámarksgildi fyrir laxfiska (sem flokkast undir fisk sem oft er neytt) er 0,5 mg/kg. þannig að ljóst er að hluti af stórurriðanum hefur verið yfir leyfilegum hámarksmörkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×