„Við hengjum ykkur bæði“ 5. október 2007 12:48 Steingrímur Njálsson. MYND/Vilhelm
Aðalmeðferð í máli lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn Steingrími Njálssyni fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Steingrími er gefið að sök að hafa hótað Illuga Jökulssyni, fyrrverandi ritstjóra DV lífláti þegar hann talaði inn á talhólf í síma hans. Steingrímur neitar sök í málinu og segist ekki vera maðurinn á upptökunum. „Ég ætla að slátra ykkur," og „Við hengjum ykkur bæði," var á meðal þess sem sagt var í skilaboðunum. Kannast ekki við röddina í símanumDómarinn í málinu spurði Steingrím í morgun hvernig stæði á því að hringt hafi verið úr síma hans í síma Illuga. Steingrímur sagðist enga skýringu kunna á því en benti á að hver sem er gæti hafa stolist í símann hans enda fengi hann oft og iðulega gesti á heimili sitt. Fulltrúi ákæruvaldsins í málinu spurði Steingrím einnig út í framburð Steingríms á sínum tíma þegar lögregla kom á heimili hans í kjölfar þess að Illugi hafði kært hann fyrir hótanirnar. Þá er Steingrímur sagður hafa sagt lögreglumönnunum sem mættu á vettvang að hafi talað við „þessa menn" eins og hann orðaði það. Í morgun kannaðist Steingrímur hins vegar ekkert við þessi ummæli sín og sagðist koma af fjöllum. Sannanlega hringt úr síma SteingrímsTvö vitni auk Illuga sjálfs voru kölluð fyrir í málinu. Fyrstur var kallaður til rafeindavirki sem bar fyrir dómi að sannanlega hafi verið hringt úr síma Steingríms í síma Illuga. Þá var kallaður til lögreglumaður sem lýsti því þegar hann fór heim til Steingríms eftir að Illugi hafði kært atvikið til lögreglu. Lögreglumaðurinn sagði að Steingrímur hefði verið ölvaður. Hann hefði kannast við tilefnið þegar lögreglu bar að garði og sagðist hafa hringt í nokkra menn úr fjölmiðlaheiminum og kallað þá mannorðsmorðingja. Ekki kom fram hjá lögreglumanninum um hvaða menn hafi verið að ræða. Verjandi gerði athugasemd við þennan framburð og benti á að í lögregluskýrslunni sem gerð var á sínum tíma hafi ekki komið fram að Steingrímur hefði kallað menn mannorðsmorðingja. Illugi Jökulsson, fyrrverandi ritstjóri DV. Illugi mætti of seintAð lokum var Illugi kallaður til vitnis í málinu. Hann var hins vegar ekki mættur á tilætluðum tíma og gerði dómari þá hlé á meðferðinni. Nú leið og beið og ekki bólaði á Illuga í réttarsalnum. Verjandi kallaði seinagang Illuga forkastanlegan og sagði réttast væri að fella málið niður vegna þeirrar vanvirðingar sem Illugi sýndi réttinum. Illugi átti samkvæmt dagskrá að mæta fyrir réttinni klukkan 9:20 en hann kom ekki fyrr en klukkan 9:58. Hann sagðist hafa verið „alveg úti að aka," hann hafi ruglast á tímasetningum og bað hann réttinn afsökunar á því. Hefur oft hringt í Illuga Dómari spurði Illuga hvort hann hefði hlustað á skilaboðin í talhólfinu til enda. Illugi sagðist ekki hafa hlustað á allt en þegar líflátshótanirnar höfðu náð vissu marki hafi hann ákveðið að fara með málið beint til lögreglunnar. Hann sagði að sér hefði orðið „afskaplega ónotalega við," þegar hann heyrði skilaboðin í talhólfinu. Hann sagði Steingrím oft hafa hringt í sig í gegnum árin en að hann hafi ávallt skellt á hann. Kvöldið áður hafi hann hringt í sig og þá hafi hann tekið símann af og lækkað í hringingunni á farsímanum. Síðar hafi komið í ljós að Steingrímur hafi lesið hótanirnar inn á talhólf í farsíma sem konan hans notaðist við. Skilaboðin voru mörg, sjö til níu talsins. Hótanirnar snerta mig illaIllugi sagðist ekki í nokkrum vafa um að Steingrímur væri maðurinn í talhólfinu. „Þessar hótanir snerta mig mjög illa, ekki síst vegna þess að ég á lítinn strák. Ég kæri mig ekki um að hann sé nálægt minni fjölskyldu," sagði Illugi fyrir réttinum. Verjandi Steingríms vildi vita hvenær Illugi hafi verið ritstjóri DV og spurði hann hvort ákveðinn blaðamaður hefði verið settur í að skrifa um Steingrím í blaðinu. Illugi sagði engan sérstakan blaðamann hafa verið settan í að skrifa um Steingrím og raunar hefði blaðið ekki fjallað sérstaklega mikið um hann á meðan Illugi var ritstjóri. Illugi vildi einnig koma því á framfæri, „að þessi maður byrjaði að hringja í mig löngu áður en ég byrjaði á DV." Hann sagði að í hvert sinn sem hann hefði gert pistla um væga dóma yfir barnaníðingum hefði Steingrímur hringt í sig. Krefst fangelsis án skilorðs Í munnlegum málflutningi krafðist fulltrúi ákæruvaldsins að Steingrímur yrði dæmdur til fangelsisvistar og taldi hann að það ætti að vera óskilorðsbundin vist. Fulltrúinn segir ótvírætt að röddin í símanum sé Steingríms og benti hann á framburð Illuga í lögregluskýrslu þar sem segir að röddin geti átt við Illuga. Þá sé sannað að sími Steingríms hafi verið notaður við verknaðinn. Hann vitnaði einnig í hótanirnar í talhólfinu sem hann sagði mjög grófar. „Ég æta að slátra ykkur," var á meðal þess sem sagt var. Þá sagði saksóknari að ákærði hafi hótað að „senda menn á Illuga" og „við ætlum að hengja ykkur saman," var einnig sagt. Þessar hótanir segir ákæruvaldið klárlega falla undir 233. grein almennra hegningarlaga enda hafi Illugi fengið hótanirnar beint í æð, eins og hann orðaði það. Þá sagði fulltrúinn að nauðsynlegt væri að horfa á sakaferil Steingríms. Hann væri „vanaafbrotamaður". Því væri hæfileg refsing að hans mati þrír til fjórir mánuður í fangelsi. Aðalmálflutningur í málinu fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ekki vanaafbrotamaðurVerjandi Steingríms krafðist hins vegar sýknu í málinu en til vara að hann yrði dæmdur til vægrar sektar. Hann sagði alls ekki sannað að röddin í símanum væri Steingríms. Framburður Illuga í málinu er ótvíræður að mati verjandans. Í skýrslutöku hafi hann sagt að röddin í símanum „gæti tilheyrt" Steingrími en í morgun sé hann hinsvegar viss um að Steingrímur hafi hótað sér. Þá fullyrti verjandinn að undir ritstjórn Illuga hafi DV lagt umbjóðanda sinn í einelti og verði Steingrímur dæmdur til refsingar bæri að líta til þess. Verjandinn var einnig afar ósáttur við að fulltrúi ákæruvaldsins hefði kallað Steingrím vanaafbrotamann og krafðist hann skýringar á ummælunum. Hann benti á að Steingrímur hafi ekki verið dæmdur síðan árið 2001 þegar hann fékk á sig dóm fyrir ölvunarakstur. Enn lengra sé síðan hann fékk dóm fyrir kynferðisbrot en það var árið 1995. Verjandinn benti á að samkvæmt lögum falli ítrekunaráhrif niður eftir fimm ár. Þar sem sex ár eru liðin frá því Steingrímur var dæmdur síðast skuli því líta svo á sem hann hafi aldrei fengið dóm. Fulltrúi ákæruvaldsins sagði hins vegar ekki hægt að skilgreina hugtakið „vanaafbrotamaður". Hins vegar bæri að líta til langs sakaferils Steingríms sem staðið hafi frá 1963 til 2001. Að síðustu sagði dómari að málflutningi væri lokið og að boðað verði til dómsuppsögu síðar.
Mest lesið Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Umbóta þörf til að halda uppi lífsgæðum á Íslandi að mati OECD Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira