Innlent

Atlantshafsbandalagið fundar í Reykjavík

Ársfundur þing Atlantshafsbandalagsins hefst í dag en fundurinn er nú haldinn í fyrsta sinn á Íslandi. Alls eru þátttakendur um sjö hundruð.

Stór hluti þeirra eru þingmenn aðildarríkja NATO en auk þeirra sækja fulltrúar aukaaðildarríkja og samstarfsríkja NATO fundinn. Um er að ræða stærsta fund alþjóðlegra þingmannasamtaka sem Alþingi hefur haldið. Á meðal þess sem rætt verður á fundinum er uppsetning eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjanna í Póllandi og Tékklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×