Innlent

Engin eftirmál af fundi með Tamíl tígrum

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar

Utanríkisráðherra segir engin eftirmál verða af fundi íslensks sendifulltrúa á yfirráðasvæði Tamíl tígranna á Sri Lanka.

Vopnahlé hefur verið í gildi milli stjórnarhersins og skæruliða Tamíl tígranna á Sri Lanka síðan árið 2002. Það er í höndum Íslendinga og Norðmanna að hafa eftirlit með vopnahléinu.

Bjarni Vestmann, sendifulltrúi hjá varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins átti á þriðjudaginn fund með S.P.Tamilselvan, leiðtoga stjórnmálaarms tígranna á svæði þeirra í Kilinochchi. Sú heimsókn vakti mikla reiði hjá stjórnvöldum á Sri Lanka. Þau kröfðust þess að honum yrði tafarlaust vísað úr landi þar sem erlendum gestum eða fréttamönnum er bannað að heimsækja þau svæði sem tígrarnir ráða yfir, nema með skýru leyfi stjórnvalda í landinu. Bjarni hafði ekki slíkt leyfi.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, segir Tamíl tígrana hafa óskað eftir að hitta Bjarna. Henni skiljist að norsku yfirmennirnir hafi komið að því að skipuleggja fundinn og að farið verði með þeim yfir málið. Ingibjörg segir einfaldlega um röð óheppilegra tilvika að ræða.

Íslensk stjórnvöld hafa beðist formlega afsökunar á fundinum og Ingibjörg heldur að það verði engin eftirmál af honum. Búið sé að ræða málið við stjórnvöld á Sri Lanka og útskýra það og þar með sé málið einfaldlega úr sögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×